Chelsea Pub Quiz verður haldið í Ölveri miðvikudagskvöldið 9. mars 2016 og hefst það stundvíslega kl. 18:00.
Ölversbændur bjóða væntanlegum þátttakendum upp á sérstakt tilboð á mat og drykk í tilefni dagsins! Öllum heimil þátttaka en miðað er við að hvert lið skipi einn eða tveir þátttakendur.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin, einnig verðlaun samkvæmt slembiúrtaki, burtséð frá árangri, og auðvitað skammar……..
Að loknu Quizinu fylgjumst við svo með leik Chelsea og Paris Saint-Germain á Stamford Bridge í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn hefst kl. 19:45 og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu í stóra salnum í Ölveri.
OG það verður “Happy Hour” í Ölveri fram yfir leik
Væntanlegir þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér skriffæri!
Nánar er nær dregur!
Með Quiz kveðju,
Skemmtinefnd Chelsea klúbbsins á Ísland ásamt IBIS bræðrum.