Chelsea og Tottenham hafa bæði áhuga á Lewis Dunk, varnarmanni Brighton. Dunk átti afar gott síðasta tímabil með Brighton.
Dunk, sem er 28 ára, hefur leikið með Brighton allan ferilinn, alls 306 leiki í öllum keppnum. Kaupverðið gæti farið upp í 40 milljónir punda en Brighton vill alls ekki missa varnarmanninn sterka.
Talksport greinir frá því að Dunk hafi alla tíð verið stuðningsmaður Chelsea. Hefur hann sömuleiðis verið orðaður við Tottenham, en Chelsea virðist vera töluvert líklegra til að hreppa leikmanninn.