Chelsea og Arsenal í FA Cup 27. maí á Wembley

Nú er ljóst að Chelsea og Arsenal leika til úrslita í ensku bikarkeppninni og fer leikur liðanna fram á Wembley laugardaginn 27. maí n.k.

ÞVÍ MIÐUR er það svo að við höfum ekki forkaupsrétt á miðum á úrslitaleiki í ensku bikarkeppnunum né á úrslitaleiki í Evrópukeppnunum. Og það er nokkuð ljóst að Chelsea mun krefjast mjög svo margra Loyalty punkta þegar þeir setja miða á leikinn í sölu til félagsmanna, svo margra að mjög fáir ef nokkrir af okkar félagsmönnum munu eiga þar einhvern möguleika í fyrstu atrennu. Áhugasamir félagsmenn geta sent okkur tölvupóst á chelsea@chelsea.is ef þeir vilja fara á biðlista hjá okkur í þeirri von að á einhverjum tímapunkti muni þeir eiga nógu marga punkta til að öðlast möguleika á kaupum á miðum á leikinn.

Ef þið hafið einhver önnur ráð með að fá miða á leikinn þá endilega nýtið ykkur þau og það sem fyrst!

chelsea@chelsea.is

Upp