Chelsea klúbburinn 24 ára

Í dag, 16. mars 2021, eru liðin 24 ár frá stofnun Chelsea klúbbsins á Íslandi en þennan dag á því herrans ári 1997 komu saman í Ölveri 30 – 40 áhugasamir fylgismenn Chelsea Football Club hér á landi og stofnuðu formlega Chelsea-klúbbinn á Íslandi.

Síðar þetta sama ár var Chelsea-klúbburinn á Íslandi svo viðurkenndur af Chelsea Football Club sem opinber stuðningsklúbbur félagsins með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgir og er svo enn í dag.

Hafa samskipti klúbbsins við móðurfélagið verið stöðug og með miklum ágætum í gegnum tíðina og nýtur íslenski klúbburinn þess heiðurs að vera einn af 32 Platinum klúbbum hjá Chelsea, er sá flokkur fullskipaður og komast færri þar að en vilja en alls eru opinberir stuðningsklúbbar Chelsea nú um 500 hundruð og koma víðs vegar að úr henni veröld.

Skráðir félagar í Chelsea-klúbbnum á Íslandi á afmælisdeginum eru alls 384.

Til hamingju með daginn félagsmenn góðir.

Stjórnin.

Upp