Nú hefur verið staðfest að leikur Chelsea gegn Manchester City í Úrvalsdeildinni mun fara fram á Stamford Bridge laugardaginn 16. apríl n.k. og hefst hann kl. 16:30 að íslenskum tíma. Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er ákaflega skammur eða til kl. 22:00 annað kvöld, miðvikudaginn 16. mars 2016.
Leikurinn er í svokölluðum AA flokki sem þýðir að félagsmenn þurfa að ráða yfir 15 „Loyalty Points“ til að eiga rétt á miðum í forkaupsrétti. Hins vegar eru enn í boði hótelpakkar á þennan leik og þar skipta „Loyalty Points“ ekki máli!
Nánari upplýsingar má fá í síma 864 6205.