CFC með sendingu til Chelsea klúbbsins

Það eru sönn forréttindi að fá sendan pakka frá Stamford Bridge merktum Chelsea klúbbnum á Íslandi og áritaðan af Bruce nokkrum. Svo ekki sé minnst á áritaðar myndir, treyju, fána, lyklakippur, penna og fleira. Á fundi í dag opnuðum við fallegan pakka sem verður að teljast hvetjandi í trúnni að góðir hlutir hafa gerst og laugardagurinn verði fánadagur. 

Hér má sjá þá Karl H. Hillers formann og Pétur gjaldkera klúbbsins flagga á heimavelli.

Svo er það fundur á laugardaginn á undan úrslitaleiknum í Meistaradeild Evrópu. KTBFFH.

Minnum á happdrættið – enn er von!

 

Upp