Meistaradeildin, andstæðingar, leikdagar, miðapantanir

Dregið hefur verið í riðla í Meistaradeild Evrópu og má með sanni segja að Chelsea hefði getað verið heppnara með tilliti til styrkleika andstæðinganna en hins vegar varla mikið heppnari er kemur að ferðalögum í útileikina, afskaplega þægilegur riðill hvað þau varðar,...

Það er best að skrá sig fyrir 11. ágúst.

Hver sá er skráir sig í Chelsea klúbbinn á Íslandi (og þar með í Chelsea Football Club) og greiðir valið árgjald fyrir kl. 15:00 sunnudaginn 11. ágúst n.k. fær nafnið sitt sjálfkrafa í happdrættispottinn góða sem dregið verður úr á aðalfundi klúbbsins í haust en þar...

Tilfærsla á leikjum í október 2019

Tveir leikja Chelsea í Úrvalsdeildinni í október 2019 hafa verið fluttir til vegna beinna útsendinga í sjónvarpi og eru þeir sem hér segir: Southampton vs Chelsea, fer fam á Saint Mary´s sunnudaginn 6. október og hefst kl. 13:00, sýndur beint á SKY SPORTS. Burnley vs...

Hafa ber í huga, endurnýjun o.fl.

Chelsea Football Club hefur ákveðið að færa tímamörk vegna endurnýjunar vs 5 Loyalty Points til föstudagsins 26. júlí n.k. og má búast við miklu álagi á heimasíðu félagsins þann dag, er því vissara að draga það ekki um of að endurnýja ef punktarnir 5 eiga að fást...

Tímafrestur vegna miðapantana

Nú hefur Chelsea Football Club gefið út tímamörk þau er gilda um forkaupsrétt okkar á miðum á leiki með Chelsea í Úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2019 - 2020 og má nálgast þau hér á síðunni undir liðnum Chelsea klúbburinn / Miðapantanir. Við bætum svo við þann lið...

20190529 211025

Evrópudeildarmeistarar 2019

Okkar er gleðin - okkar er sigurinn. - Notum tækifærið og óskum öllum stuðningsmönnum til hamingju með sigurinn í Azerbaijan án þess að tapa leik! Eitt af þremur liðum sem hefur unnið þessa keppni í úrslitaleik með meira en fjórum mörkum. Hin liðiin eru ensk. ...

Dregið í Vorhappdrættinu

Dregið var í vorhappdrætti Chelsea klúbbsins á félagsfundi er haldinn var í Ölveri miðvikudagskvöldið 29. maí sl. en þátttaka í happdrættinu var mjög góð að vanda. Búið er að hafa samband við þá vinningshafa sem ekki voru staðnum og eru þeir flestir nú búnir að fá...

Árgjöld 2019 – 2020 vs Endurnýjun

Nú hafa árgjöld vegna starfsársins 2019 – 2020 verið ákveðin, verða þau óbreytt frá því sem nú er hvað varðar flokka fullorðinna en því miður þurfum við að hækka árgjöld barna og unglinga lítils háttar eða um kr. 500.- hvorn flokk. Flokkarnir eru hinir sömu og að...

Vorhappdrætti Chelsea klúbbsins 2019

Vorhappdrætti Chelsea klúbbsins á Íslandi er á sínum stað að venju, sama gamla góða fyrirkomulagið, fyrir hvern fimm hundruð kall sem þú leggur inn á reikning Chelsea klúbbsins færðu nafn þitt skráð einu sinni í happdrættispottinn góða en að sjálfsögðu er þér heimilt...

Joii
EiríkssonKjötsmiðjan
American Bar
Car RentalHársnyrtistofan