Aðalfundur 2021 á Grand Hóteli, 6. nóvember nk.

Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi 2021 verður haldinn í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 6. nóvember n.k. og hefst fundurinn kl. 13:00. Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins verður m.a. dregið í happdrættum Chelsea klúbbsins, venju samkvæmt eru í aðalflokknum nöfn þeirra er greiddu árgjald vegna yfirstandandi starfsárs fyrir fyrsta leik Chelsea í Úrvalsdeildinni á keppnistímabilinu, þá verður dregið í sérstökum flokki barna og unglinga og lokaflokkinn sem dregið er úr skipa þeir er mæta á aðalfundinn.

Veglegir vinningar að vanda!

Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Chelsea vs Burnley í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Stamford Bridge en leikur liðanna hefst kl. 15:00, valinkunnur leikrýnir mun væntanlega lesa í liðin og leikinn með fundargestum.

Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea klúbbsins á staðnum og til að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 4. nóvember n.k.

Athugið að eingöngu þeir sem greitt hafa árgjald til klúbbsins vegna yfirstandandi starfsárs er heimil þátttaka í fundinum.

Í tilefni fundarins býður Grand Hótel áhugasömum félagsmönnum upp á gistingu á hótelinu þessa sömu helgi á algjörum vildarkjörum, tveggja manna herbergi með morgunverði á kr. 18.900.- nóttin (9.450.- á mann), eins manns herbergi með morgunverði á kr. 16.100.-nóttin, góð herbergi með útsýni. Pantanir sendist á johann@grand.is

Upp