Aðalfundur Chelsea-klúbbsins á Íslandi 2024

Aðalfundur Chelsea-klúbbsins á Íslandi 2024 fer fram í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 28. september n.k. og hefst hann kl. 12:30.

Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins verður m.a. tilnefning heiðursfélaga og dregið verður í happdrætti Chelsea-klúbbsins, venju samkvæmt.

Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Chelsea vs Brighton & Hove Albion í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Stamford Bridge en leikur liðanna hefst kl. 14:00, leikrýnir Chelsea-klúbbsins, Willum Þór Þórsson, hefur staðfest komu sína og mun hann spá og spekúlera ásamt fundarmönnum í leikinn og stöðu mála hjá Chelsea Football Club.

Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea-klúbbsins á staðnum og til að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 26. september n.k.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að gista á Grand Hótel aðalfundarhelgina þá býður hótelið upp á eftirfarandi tilboð til félagsmanna:

Single: 32.900 kr

Double/Twin: 36.300 kr

Verð er per herbergi per nótt. Innifalið í verði er morgunverður, aðgangur að líkamsrækt, 11% vsk og 666 kr gistináttaskattur.

Athugið að eingöngu þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald til klúbbsins fyrir aðalfund er heimil þátttaka í fundinum.

Í 11. grein laga Chelsea-klúbbsins segir m.a.:

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

a) Kosning fundarstjóra.
b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs.
c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning formanns.
g) Kosning fjögurra stjórnarmanna.
h) Kosning tveggja endurskoðenda.
i) Kosning í laganefnd (Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar).
j) Önnur mál.

Nánari fréttir varðandi aðalfundinn er nær dregur.

Bestu kveðjur,

Stjórn Chelsea-klúbbsins á Íslandi.

Upp