Aðalfundur 12. nóvember 2023

Ágætu félagar.

Aðalfundur Chelsea-klúbbsins á Íslandi 2023  fer fram í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík sunnudaginn 12. nóvember n.k. og hefst hann kl. 15:00.

Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins verður m.a. tilnefning heiðursfélaga og dregið verður í happdrætti Chelsea-klúbbsins, venju samkvæmt.

Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Chelsea vs Manchester City í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Stamford Bridge en leikur liðanna hefst kl. 16:30, leikrýnir Chelsea-klúbbsins, Willum Þór Þórsson, hefur staðfest komu sína og mun hann spá og spekúlera ásamt fundarmönnum í leikinn og stöðu mála hjá Chelsea Football Club.

Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea-klúbbsins á staðnum og til  að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 9. nóvember n.k.

Athugið að eingöngu þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald til klúbbsins fyrir aðalfund er heimil þátttaka í fundinum.

Í 11. grein laga Chelsea-klúbbsins segir m.a.:

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

a) Kosning fundarstjóra.
b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs.
c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning formanns.
g) Kosning fjögurra stjórnarmanna.
h) Kosning tveggja endurskoðenda.
i) Kosning í laganefnd  (Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar).
j) Önnur mál.

Bestu kveðjur,

Stjórn Chelsea-klúbbsins á Íslandi.

Upp