Chelsea hefur staðfest að Ross Barkley sé laus frá félaginu, en samningur þessa 28 ára leikmanns átti að renna út í lok tímabilsins 2022/23.
Barkley gekk til liðs við Chelsea frá Everton í janúar 2018 og lék 100 leiki fyrir Chelsea í öllum keppnum og skoraði alls 12 mörk fyrir liðið, hann kom við sögu í fjórtán leikjum á síðasta keppnistímabili og skoraði 3 mörk.