Romelu Lukaku gæti gengið aftur í raðir Inter Mílanó í sumar frá Chelsea. Enska félagið keypti Belgann af Inter á 97,5 milljónir síðasta sumar.
Lukaku átti erfitt tímabil með Chelsea og olli nokkrum vonbrigðum. Hann viðurkenndi í viðtali við Sky á Ítalíu í desember að hann væri til í að snúa aftur til Inter.
Sky greinir frá því að Inter geti ekki boðið Chelsea neitt í líkingu við þá upphæð sem enska félagið greiddi fyrir belgíska framherjann. Þrátt fyrir mun teymi Lukaku funda með Inter í vikunni.