Fjórir leikja Chelsea til viðbótar í Úrvalsdeildinni í apríl hafa verið færðir til vegna beinna sjónvarpsútsendinga:
- Leeds United vs Chelsea, fer fram á Elland Road sunnudaginn 17. apríl og hefst kl. 11:00, sýndur beint á SKY SPORTS.
(Þessum leik gæti verið frestað ef Chelsea nær í undanúrslit ensku bikarkeppninnar). - Chelsea vs Arsenal, fer fram á Stamford Bridge miðvikudagskvöldið 20. apríl og hefst kl. 18:45, sýndur beint á SKY SPORTS.
(Þessum leik var frestað á sínum tíma vegna þátttöku Chelsea í Heimsmeistarakeppni félagsliða). - Chelsea vs West Ham United, fer fram á Stamford Bridge sunnudaginn24. apríl og hefst kl. 13:00, sýndur beint á SKY SPORTS.
(Þessi leikur kann að vera færður til ef Chelsea nær í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu). - Everton vs Chelsea, leikur liðanna sem var fyrirhugaður á Goodison Park laugardaginn 30. apríl hefur nú verið færður til sunnudagsins 1. maí og hefst hann kl. 13:00, sýndur beint á SKY SPORTS.
(Þessi leikur kann að vera færður til verði Chelsea enn á meðal þátttökuliða í Meistaradeild Evrópu).
Fullt af fyrirvörum og ekki vitað um hvort nokkrir miðar verða í boði fyrir aðra en ársmiðahafa.