Þá er fyrsta mánuðinum í Tippleik Chelsea.is 2021/2022 lokið og það var sjálfur Abramovich sem tók efsta sætið á endasprettinum af Kristjáni en hann hlaut ekkert stig í síðasta leik CFC. Að launum fær sigurvegarinn gjafabréf frá Gleðipinnum sem starfrækja m.a. Keiluhöllina í Egilshöll og Shake & Pizza. Hefur sigurvegara ágústmánaðar verið sendur vinningur sinn.
Þessir skipuðu þrjú efstu sætin í Tippleik Chelsea.is í ágúst :
- Abramovich 12 stig,
- Arnór Hillers 11 stig,
- Kristján 11 stig.
Spennandi, ekki satt?
Styrktaraðilar Tippleiksins eru American Bar, Eiriksson Brasserie, Gleðipinnar og Rikki Chan.
Það er óþarfi að geta þess að það kostar ekkert að taka þátt, bara að skrá sig, tippa og brosa.
Með Tippkveðju,
Umsjónarmenn.