Dregið hefur verið til 3ju umferðar Enska deildabikarsins og fékk Chelsea heimaleik gegn Aston Villa og hefur nú verið staðfest að leikurinn fari fram miðvikudagskvöldið 22. september n.k. Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til miðnættis mánudaginn 30. ágúst.
Miðar á þennan leik eru í ódýrari kantinum, GBP 25.- fyrir fullorðna, GBP 12.- fyrir ellilífeyrisþega (65 ára og eldri) og börn og unglinga (yngri en 20 ára). Ofan á miðaverðið leggst reyndar GBP 2.- auk þóknunar til Chelsea klúbbsins, kr. 500.- hver miði.
Tekið er við miðapöntunum á chelsea@chelsea.is til og með mánudagsins 30. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar má fá í síma 864 6205.
Með meistarakveðju,
Stjórnin.