Tippleikur Chelsea.is er nú kominn á stjá að nýju, fyrsta tippið að þessu sinni er þegar Chelsea og Villareal mætast í keppninni um Ofurbikarinn (Super Cup) í Belfast miðvikudagskvöldið 11. ágúst n.k.
Um Tippleikinn:
Þetta er einfaldur leikur sem virkar þannig að giskað er á úrslit leikja Chelsea og hvaða leikmaður er fyrstur til að skora í viðkomandi leik.
Stig eru gefin til getspakra þátttakenda. Eitt stig er gefið fyrir að giska á rétt úrslit leiks, þrjú stig eru gefin fyrir að giska á rétta markatölu og þrjú stig eru gefin fyrir að giska á fyrsta markaskorara.
Þannig er mest hægt að fá 7 stig í hverri umferð.
Athugið að eftir að flautað hefur verið til leiks er ekki hægt að setja inn spá um viðkomandi leik, þá er hægt að spá um þrjá leiki fram í tímann hverju sinni.
Vegleg verðlaun eru veitt til þeirra sem skipa þrjú efstu sætin í lok hvers keppnistímabils, auk þess hlýtur einn heppinn þátttakandi vinning í slembiúrtaki úr nöfnum þátttakenda, burtséð frá árangri (nöfn þriggja efstu þátttakenda verða þó ekki með í því úrtaki).
Verði tveir eða fleiri þátttakendur jafnir í efsta sæti telst sá sigurvegari er oftar hefur hlotið hæsta skor á tímabilinu, þ.e. 7 stig, dugi það ekki til vinnur sá er oftar hefur náð 4 stigum o.s.frv. Þessi regla gildir þó ekki um hæsta skor hvers mánaðar.
Veitt eru verðlaun fyrir hæsta skor í hverjum mánuði, Chelsea þarf þó að hafa leikið a.m.k. þrjá leiki í opinberu móti þann mánuð.
Allir leikir Chelsea í opinberum mótum gilda þó þegar kemur að heildarskori.
Eingöngu félagsmenn í Chelsea klúbbnum geta unnið til verðlauna en öðrum er samt heimil þátttaka.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að þegar leikir fara í framlengingu gilda úrslit að loknum venjulegs leiktíma (almenn regla hjá Getraunum), þó er hægt að næla í þrjú stig vegna fyrsta markaskorara ef fyrsta mark leiks kemur í framlengingu, gildir ekki um vítakeppni endi leikur með markalausu jafntefli.
Fyrir þá sem eru að skrá sig inn og muna ekki lykilorðið sitt er bent á að hafa samband í gegnum netfangið chelsea@chelsea.is.
Þeir sem eru að skrá sig inn í fyrsta sinn þurfa að staðfesta skráningu með því að opna það netfang sem notandi er skráður á og staðfesta skráningu.
Í örfáum tilfellum gæti sá póstur lent í ruslasíum pósthólfa.
Góða skemmtun!
Umsjónarmenn.