On their way to victory

Það vill nú þannig til að stelpurnar okkar í Chelsea Women eiga möguleika á að landa enn einum titlinum á þessu keppnistímabili, nefnilega enska bikarnum, þ.e. Vitality Women´s FA Cup, en keppni þessi hefur dregist á langinn vegna Covid-19 faraldursins.

Í morgun var dregið í höfuðstöðvum FA um hvaða lið mætast í fjórðungsúrslitum keppninnar og munu Chelsea Women leika gegn Birmingham City í Birmingham miðvikudagskvöldið 29. september n.k.

Aðrar viðureignir í átta liða úrslitum keppninnar eru Manchester City vs Leicester City, Arsenal vs Tottenham Hotspur og Brighton vs Charlton Athletic.

Fari svo (sem við öll vonumst til) að Chelsea Women standi uppi sem sigurvegarar í þessari keppni hefur liðið þar með unnið allar þær keppnir sem það hefur tekið þátt í heima fyrir, yrði einstakt afrek!

Upp