Mason Mount hefur verið kjörinn leikmaður keppnistímabilsins 2020 – 2021 af félagsmönnum Chelsea Football Club um víða veröld en kosning á meðal þeirra hefur staðið yfir á heimasíðu Chelsea undanfarnar vikur.
Vegna Covid-19 ástandsins fór ekki fram hefðbundið kjör á meðal stuðningsmannaklúbba félagsins að þessu sinni.
Mount, sem hefur skorað 8 mörk fyrir Chelsea á tímabilinu, hefur sýnt miklar framfarir og stöðugleika í leik sínum á undanförnum mánuðum og er orðinn einn af lykilmönnum liðsins og á orðið víst sæti í landsliðshópi Englands á EM í sumar.
Mount fær viðurkenningu vegna þessa afhenta fyrir leik Chelsea vs Leicester City á Stamford Bridge í kvöld.
Verðskuldaður heiður og til hamingju Mason Mount.