Því miður reyndist ómögulegt að ráða bót á kerfisvillu þeirri er hrjáði Tippleik Chelsea.is sem gerði það að verkum að við vorum nauðbeygðir til að blása Tippleikinn af við svo búið.
Við erum með stöðuna í Tippleiknum eins og hún var eftir leik Chelsea vs Burnley 21. febrúar síðast liðinn í skjóli og munu umsjónarmenn Tippleiksins taka ákvörðun um hvort, hvenær og þá hvernig við gerum Tippleikinn upp en þess skal getið að vinningar fyrir hæstu skor hvers mánaðar, allt frá byrjun keppnistímabilsins til og með febrúarmánaðar, hafa verið afhentir viðkomandi vinningshöfum, 14 vinningar sem skiptast á milli 9 vinningshafa.
Um leið og við þökkum öllum þeim sem hafa tekið þátt í þessum mjög svo skemmtilega leik undanfarin ár sem og þeim styrktaraðilum sem lagt hafa til vinninga þá er það einlæg von okkar að á næsta keppnistímabili verði nýr Tippleikur, í einni eða annarri mynd.
Hér er svo staðan eins og hún var er Tippleikurinn dó drottni sínum:
Herra Æðislegur 56
Charlie Cooke 52
Arnór Hillers 50
Haddi69 49
Herbert 49
vr 49
Stone 48
thorri 47
stefhall 45
Edda 44
abramovich 43
danival 40
Freysi 36
Jokanovic 36
solvip 28
Bingo 22
kiddimagg 21
FH 20
slavik14 12
omararnar 10
Nikolai 7
kristján 5
orvar 5
Þökkum kærlega fyrir okkur.
með Tippkveðju,
Umsjónarmenn

















