Stjórn Chelsea klúbbsins hefur ákveðið að verða við fjölda áskorana og bjóða ykkur að kaupa Chelsea andlitsgrímur en stjórnvöld hafa ákveðið grímuskyldu næstu vikurnar við mjög svo margar kringumstæður í þjóðfélaginu til að stemma stigu gegn útbreiðslu Covid-19 veirunnar.
Samningar hafa tekist við einn af samstarfs- & styrktaraðilum Chelsea klúbbsins, Marko-Merki, um framleiðslu, sölu og afhendingu á grímunum, verðinu er stillt mjög í hóf eða kr. 1500.- stykkið og munu kr. 500.- af hverri seldri grímu renna í Minningar- & Styrktarsjóð Chelsea klúbbsins.
Grímurnar eru margnota og fylgja tvær grisjur hverri grímu, eftir það þarf að kaupa grisjur í þær og skipta um e.atv. og jafnframt að þvo grímurnar sjálfar reglulega.
Fjórar útfærslur af grímum verða í boði, tvær útfærslur merktar vörumerki Chelsea Football Club og svo útfærsla merkt Chelsea-klúbbnum á Íslandi, sama verð í öllum tilfellum. Muna bara að merkja hvaða tegund er óskað eftir en á myndinni. má sjá númerin 1, 2, 3 og 4. Tilgreina þarf fjölda.
Þess má geta að Marko-Merki bjóða upp á sérstakar grímuhlífar fyrir áhugasama, nánari upplýsingar um þær má fá á heimasíðu fyrirtækisins, www.marko.is
Pantanir berist á netfang chelsea@chelsea.is eða í síma 864 6205, taka þarf fram fjölda og hvaða útfærslu er verið að panta (að sjálfsögðu er hægt að panta allar útfærslunar) og greiða andvirðið inn á reikning 0133-15-200166, setja kennitölu kaupanda í Skýring greiðslu og GRÍMUR í Tilvísun. Kennitala Chelsea-klúbbsins er 690802-3840.
Afgreiðslufrestur er 1-2 dagar á svörtu grímunum, 3-5 dagar á bláu grímunum.
Sendið okkur svo tölvupóst á chelsea@chelsea.is eða hringið í 864 6205 og látið okkur vita hvort þið viljið nálgast pantanir ykkar sjálfir til Marko-Merkja eða fá þær sendar til ykkar.
Bestu kveðjur,
Stjórnin.