Aðalfundur Chelsea-klúbbsins á Íslandi 2025 fer fram í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 1. nóvember n.k. og hefst hann kl. 16:00.
Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins verður m.a. tilnefning heiðursfélaga og dregið verður í happdrætti Chelsea-klúbbsins, venju samkvæmt.
Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Tottenham Hotspur vs Chelsea í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Tottenham Hotspur Stadium en leikur liðanna hefst kl. 17:30.
Leikrýnir Chelsea-klúbbsins, Willum Þór Þórsson, hefur staðfest komu sína og mun hann spá og spekúlera ásamt fundarmönnum í leikinn og stöðu mála hjá Chelsea Football Club.
Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea-klúbbsins á staðnum.
Til að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 30. október n.k.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að gista á Grand Hótel aðalfundarhelgina þá eru eftirfarandi skilaboð frá Grand Hótel:
Okkur er ánægja að bjóða þér afsláttarkóða fyrir bókunarvélina okkar á netinu. Kóðinn veitir 10% afslátt af okkar bestu fáanlegu verði, morgunverður innifalinn, á öllum hótelum Íslandshótela.
Þú getur bókað beint í gegnum eftirfarandi hlekk (afsláttarkóði þegar virkur):
https://islandshotel-isk.direct-reservation.net/is/accommodation?promo=TOA5X7C10
Athugið að eingöngu þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald til klúbbsins fyrir aðalfund er heimil þátttaka í fundinum.
Í 11. grein laga Chelsea-klúbbsins segir m.a.:
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
a) Kosning fundarstjóra.
b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs.
c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning formanns.
g) Kosning sjö stjórnarmanna.
h) Kosning tveggja endurskoðenda.
i) Kosning í laganefnd (Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar).
j) Önnur mál.
Stjórn Chelsea-klúbbsins á Íslandi.