Malang Sarr – þekkið þið þennan?

Chelsea er í viðræðum við fulltrúa varnarmannsins Malang Sarr. Þessi 21 árs strákur er laus allra mála frá Nice í Frakklandi og hefur verið í viðræðum við Chelsea um fimm ára samning.

Sarr lék 20 leiki fyrir Nice síðasta tímabil en náði ekki samkomulagi um nýjan samning.

Real Betis á Spáni og félög í Þýskalandi hafa sýnt miðverðinum áhuga en launakröfur hans fæla áhugasöm félög frá.

Guardian segir að Frank Lampard hafi áhuga á að fá Sarr til Chelsea og lána hann mögulega til Þýskalands. Bayer Leverkusen, Borussia Mönchengladbach og Schalke hafa áhuga.

Chelsea hefur verið öflugt á markaðnum og er nálægt því að krækja í Ben Chilwell, Kai Havertz og Thiago Silva. Fyrr í sumar komu Timo Werner og Hakim Ziyech.

Upp