Hollenski knattspyrnumaðurinn Xavier Mbuyamba er genginn til liðs við Chelsea en hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans hjá spænska stórliðinu Barcelona rann út í sumar.
Mbuyamba er átján ára gamall og uppalinn hjá Maastricht í heimalandinu en hann gekk til liðs við akademíu Barcelona á síðasta ári þar sem hann spilaði með U19 ára liðinu. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning í Lundúnum.