Það styttist í að dregið verður í vorhappdrættinu og vinningum fjölgar bara og fjölgar.
Sama gamla góða fyrirkomulagið, fyrir hvern fimm hundruð kall sem þú leggur inn á reikning Chelsea klúbbsins færðu nafn þitt skráð einu sinni í happdrættispottinn góða en að sjálfsögðu er þér heimilt að reiða eins marga fimm hundruð kalla af hendi og þér lystir, t.d. færðu nafnið þitt skráð einu sinni ef þú greiðir kr. 500.-, fimm sinnum ef þú greiðir kr. 2500.-, tíu sinnum ef þú greiðir kr. 5.000.- o.s.frv.
Reikningsnúmer klúbbsins er 0133-15-200166, kt. 690802-3840, vinsamlegast tilgreinið HAPPDRÆTTI í tilvísun og kennitölu ykkar í GREIÐANDI.
Veglegir vinningar að vanda, m.a.
- dekkjaumgangur undir bílinn í boði Dekkjahallarinnar að andvirði kr. 70.000.-,
- Chelsea treyjur, áritaðar af leikmönnum Chelsea,
- bland í poka í boði Chelsea Football Club,
- gjafabréf frá Knattspyrnuversluninni Jói útherji,
- gjafabréf frá Kjötsmiðjunni,
- inneignarkort hjá Orkunni,
- gjafabréf frá Grand Hótel Reykjavík,
- gjafabréf frá Fiskbúðinni Hafberg,
- Carabao orkudrykkir frá Carabao Iceland,
- afnot af KIA SORENTO bifreið í þrjá daga í boði AVIS,
- heimilistæki frá Bræðrunum Ormsson,
- þráðlaus Blue Tooth heyrnatól í boði Origo,
- gjafabréf frá Hamborgarabúllu Tómasar,
- gjafabréf frá Hárlínunni,
- gjafabréf frá Kjötkompaníinu
- o.fl. o.fl.
Vinningaskrá verður uppfærð af og til fram að drætti en dregið verður í happdrættinu laugardaginn 30. maí n.k.
Ekki flókið, allir að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt!
Koma svo.
Nánari upplýsingar í síma 864 6205.