Leik frestað og fréttamolar

Dregið var í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar og mun Chelsea mæta Leicester City á King Power Stadium í Leicester og er leikur liðanna fyrirhugaður helgina 20. – 22. mars 2020.

Við eigum von á frekari fréttum úr herbúðum Chelsea fljótlega varðandi endanlegan leikdag og tíma auk fyrirkomulags á forkaupsrétti okkar á miðum á þennan leik.

Vegna velgengni Chelsea í bikarkeppninni hefur leik liðsins í Úrvalsdeildinni gegn Manchester City sem átti að fara fram á Stamford Bridge laugardaginn 21. mars n.k. verið frestað um óákveðinn tíma.

Upp