Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi 2019

Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi 2019 verður haldinn í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 2. nóvember n.k. og hefst fundurinn kl. 15:30.

Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins (sjá hér að neðan) verður m.a. dregið í happdrættum Chelsea klúbbsins, venju samkvæmt eru í aðalflokknum nöfn þeirra er greiddu árgjald vegna yfirstandandi starfsárs fyrir fyrsta leik Chelsea í Úrvalsdeildinni á keppnistímabilinu, þá verður dregið í sérstökum flokki barna og unglinga og lokaflokkinn sem dregið er úr skipa þeir er mæta á aðalfundinn.

Veglegir vinningar að vanda!

Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Watford vs Chelsea í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Vicarage Road en leikur liðanna hefst kl. 17:30 og að sjálfsögðu mun Willum Þór hita upp fyrir leikinn með fundargestum.

Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea klúbbsins á staðnum og til að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 31. október n.k.

Athugið að eingöngu þeir sem greitt hafa árgjald til klúbbsins vegna yfirstandandi starfsárs er heimil þátttaka í fundinum.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

a) Kosning fundarstjóra.
b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs.
c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning formanns.
g) Kosning sjö stjórnarmanna.
h) Kosning tveggja endurskoðenda.
i) Kosning í laganefnd
-Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar.
j) Önnur mál.

Nánar um aðalfundinn á næstu dögum!

Bestu kveðjur, 
Stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi.

Upp