Chelsea mætir Manchester United í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar og mun leikurinn fara fram á Stamford Bridge mánudagskvöldið 18. febrúar n.k. og hefst hann kl. 19:30.
Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til kl. 12:00 næstkomandi mánudag, 4. febrúar, tekið er við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is
Leikur þessi fellur undir Loyalty Points regluna og þurfa viðkomandi að ráða yfir 10 punktum hið minnsta til að vera gjaldgengir varðandi forkaupsréttinn.
Athugið að sæti í Shed End Stand eru ekki í boði á þessum leik en annars gildir sama verð í allar aðrar stúkur, miðarnir nánast á hálfvirði