Chelsea og Tottenham Hotspur eigast við í undanúrslitum Deildabikarsins (Carabao Cup) á Stamford Bridge 22. eða 23. janúar n.k., endanlegur leikdagur hefur enn ekki verið ákveðinn!
Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til kl. 20:00 sunnudaginn 23. desember.
ATH. Chelsea hefur ákveðið að fella þennan leik undir „Loyalty Points“ regluna og þurfa félagsmenn að ráða yfir 10 slíkum punktum til að vera gjaldgengir varðandi miðapöntun í forkaupsrétti okkar.
Tekið er við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is, nánari upplýsingar má fá í síma 864 6205.