Evrópudeildin, forkaupsréttur á miðum

Chelsea mætir Malmö FF í 32ja liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu og fer seinni leikur liðanna fram á Stamford Bridge fimmtudagskvöldið 21. febrúar n.k.

Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er til og með nýársdags, 1. janúar 2019, tekið er við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is

Því miður fær Chelsea það fáa miða á fyrri leik liðanna er fram fer í Malmö fimmtudagskvöldið 14. febrúar að ekki verður um neinn forkaupsrétt að ræða hvað varðar miðakaup á þann leik.

Upp