Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi 2018 verður haldinn í Hvammi á Grand 4. nóv. kl. 14:30.

Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi 2018 verður haldinn í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík sunnudaginn 4. nóvember n.k. og hefst fundurinn kl. 14:30.

Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins verður m.a. dregið í happdrættum Chelsea klúbbsins, venju samkvæmt eru í aðalflokknum nöfn þeirra er greiddu árgjald vegna yfirstandandi starfsárs fyrir fyrsta leik Chelsea í Úrvalsdeildinni á keppnistímabilinu, þá verður dregið í sérstökum flokki barna og unglinga og lokaflokkinn sem dregið er úr skipa þeir er mæta á aðalfundinn. Veglegir vinningar að vanda!

Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Chelsea gegn Crystal Palace í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Stamford Bridge en leikur liðanna hefst kl. 16:00. Og að sjálfsögðu mætir Willum Þór á staðinn og spáir og spekúlerar í leikinn og gengi Chelsea ásamt fundargestum.

Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea klúbbsins á staðnum og til  að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 1. nóvember n.k.

Athugið að eingöngu þeir sem greitt hafa árgjald til klúbbsins vegna yfirstandandi starfsárs er heimil þátttaka í fundinum.

Upp