Liverpool og Chelsea eigast við í þriðju umferð Carabao Cup (Deildabikarinn) á Anfield Road miðvikudagskvöldið 26. september n.k. Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til kl. 15:00 á morgun, föstudag 14. september 2018.
Chelsea Football Club hefur ákveðið að fella þennan leik undir Loyalty punkta regluna og þarf hver sá er óskar eftir miða á þennan leik í forkaupsrétti okkar að ráða yfir 5 Loyalty punktum.
Miðar eru nánast á hálfvirði á þennan leik, tekið er við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is