Chelsea vs Shamrock Rovers 19. des. Forkaupsréttur

Sambandsdeildin fimmtudagskvöldið 19. desember kl. 20:00, Chelsea vs Shamrock Rovers.

Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er til kl. 12:00 mánudaginn 21. október n.k., leikurinn gefur af sér 5 Loyalty punkta!

Grunnverð miða í allar stúkur (Westview undanskilin) er GBP 27.- fyrir fullorðna (20 – 64 ára) en GBP 13,50 fyrir börn og unglinga (19 ára og yngri) og ellilífeyrisþega (65 ára og eldri).

Eingöngu er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is og þarf að taka fram í hvaða stúku óskað er eftir miðum í, bæði valkost #1 sem og valkost #2 til vara.
Upp