Endurnýjanir og nýskráningar fyrir 2024 – 2025

Endurnýjanir og nýskráningar vegna aðildar að Chelsea-klúbbnum og Chelsea Football Club eru nú í fullum gangi og þeir sem skrá sig eða endurnýja fara sjálfkrafa í happdrættispott hjá Chelsea Football Club hvar dregið er mánaðarlega um miða á leiki með Chelsea á yfirstandandi keppnistímabili.

Þá má geta þess að Tippleikur Chelsea.is er kominn á fulla ferð, þar geta eingöngu félagsmenn í Chelsea-klúbbnum unnið til verðlauna sem eru veitt mánaðarlega allt keppnistímabilið en öllum heimil þátttaka, ekkert þátttökugjald, bara að skrá sig með því að senda póst á chelsea@chelsea.is og taka fram nafn, notendanafni (aðeins eitt orð) og netfang.

Slóðin á Tippleikinn er http://tippleikur.chelsea.is

Árgjöld vegna starfsársins 2024– 2025 eru sem hér segir:

  • Adult Ticket Only Membership (ATOM): Kr. 8.000.-
  • Teen Membership (TM): Kr. 8.000.-
  • Junior Blues Membership (JBM): Kr. 8.000.-

Upplýsingar um innihald flokkanna og skráningarferlið er að finna á heimasíðu Chelsea-klúbbsins, www.chelsea.is – Skráning.

Árgjöld greiðist inn á reikning 0133-15-200166, kennitala 690802-3840.

Ef þú ert í einhverri óvissu um hvort þú ert búinn að greiða árgjaldið er bara að kíkja á félagatalið á heimasíðu klúbbsins (www.chelsea.is -UM KLÚBBINN -FÉLAGATAL 2024-2025) eða hafa samband við okkur á chelsea@chelsea.is eða í síma 696-0963.

Upp