Forkaupsréttur á miðum á leik Panathinaikos vs Chelsea

Sambandsdeildin fimmtudagskvöldið 24. október kl. 18:45 að staðartíma, Panathinaikos vs Chelsea.

Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er til og með sunnudagsins 15. september n.k., leikurinn gefur af sér 5 Loyalty punkta!

Grunnverð miða er GBP 17.-

Eingöngu er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is

Miðakaupendur þurfa að skila ferðagögnum, þ.e. upplýsingum varðandi vegabréf, ferðamáta og gististað, fyrir þriðjudaginn 15. október 2024.

Upp