Nú hefur Chelsea Football Club lokað á endurnýjanir og nýskráningar vegna yfirstandandi keppnistímabils, búast má við að opnað verði að nýju í fyrsta lagi um miðjan apríl og gilda þá endurnýjanir og nýskráningar sem berast eftir það fyrir keppnistímabilið 2017 – 2018.
Hér á landi er samt sem áður hægt að endurnýja og skrá sig fyrir næsta keppnistímabil með því að greiða valið árgjald inn á bankareikning Chelsea klúbbsins (sjá Árgjald/Skráning) en í ljósi gengisþróunar breska pundsins er viðbúið að árgjöld lækki fyrir næsta starfsár og verður þeim er kjósa að geiða árgjald samkvæmt núverandi gjaldskrá á næstu dögum og vikum endurgreiddur mismunur sá er kann að skapast þegar árgjald fyrir 2017 – 2018 liggur fyrir.
ATHUGIÐ, aðild að Chelsea klúbbnum er algjör forsenda þess að njóta fyrirgreiðslu hjá stjórn klúbbsins er kemur að miðakaupum á leiki með Chelsea, sama gildir um pantanir á hótelpökkum í tengslum við leiki Chelsea á Stamford Bridge.