Nýtt starfsár Chelsea klúbbsins 2024

1. júní 2024, hófst nýtt starfsár Chelsea klúbbsins á Íslandi, það tuttugusta- og áttunda í röðinni frá því er Chelsea klúbburinn var stofnaður.

Á næstu vikum og mánuðum munu störf stjórnarmanna einkennast af umsjón með endurnýjun félagsaðildar, bæði klúbbsins sem slíks gagnvart Chelsea Football Club og þá ekki síður félagsmanna Chelsea klúbbsins, jafnframt að taka við nýskráningum í klúbbinn og koma þeim til skila til móðurfélagsins, einnig að aðstoða félagsmenn við kaup á miðum á leiki Chelsea á komandi keppnistímabili en leikjaskrá vegna keppnistímabilsins 2024-2025 verður opinberuð þriðjudaginn 18. júní n.k.

Ekki er enn ljóst hver félagsgjöldin verða fyrir nýhafið starfsár en upplýsingar frá Chelsea Football Club þar um berast okkur væntanlega fyrir lok mánaðarins, stjórn Chelsea klúbbsins vonast til að þau haldist óbreytt frá því sem var á síðasta starfsári og munum við senda upplýsingar um árgjöldin um leið og þær liggja fyrir til félagsmanna og annarra áhugasamra.

Stjórn Chelsea klúbbsins þakkar félagsmönnum, samstarfs- & styrktaraðilum og öðrum velunnurum Chelsea klúbbsins samfylgdina á nýliðnu starfsári með von um ánægjulegt og árangursríkt framhald á nýju starfsári.

Upp