Í dag er síðasti séns til að taka þátt í vorhappdrætti Chelsea klúbbsins en lokað verður sölu miða á miðnætti í kvöld, föstudaginn 27. maí 2016.
Sama gamla góða fyrirkomulagið, fyrir hvern fimm hundruð kall sem þú leggur inn á reikning Chelsea klúbbsins færðu nafn þitt skráð einu sinni í happdrættispottinn góða en að sjálfsögðu er þér heimilt að reiða eins marga fimm hundruð kalla af hendi og þér lystir, t.d. færðu nafnið þitt skráð einu sinni ef þú greiðir kr. 500.-, fimm sinnum ef þú greiðir kr. 2500.-, tíu sinnum ef þú greiðir kr. 5.000.- o.s.frv.
Reikningsnúmer klúbbsins er 0133-15-200166, kt. 690802-3840, vinsamlegast tilgreinið HAPPDRÆTTI í tilvísun og kennitölu ykkar í GREIÐANDI.
Veglegir vinningar að vanda, m.a. dekkjagangur undir bílinn í boði Dekkjahallarinnar að andvirði kr. 70.000.-, Chelsea fótbolti, áritaður af leikmönnum Chelsea, umfelgunarpakkar í boði Dekkjahallarinnar, margvísleg gjafabréf frá ýmsum samstarfs- & styrkaraðilum Chelsea klúbbsins o.fl. o.fl.
Dregið verður í happdrættinu á félagsfundi sem verður haldinn í Ölveri á morgun, laugardaginn 28. maí 201
Ekki flókið, allir að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt!
Nánari upplýsingar í síma 864 6205
Með Chelsea kveðju,
Stjórnin.