Eins og fram kemur í fundarboði aðalfundar Chelsea klúbbsins verður á fundinum haldið uppboð á Chelsea fótbolta, árituðum af Englands- & Deildabikarmeisturum Chelsea Football Club.
Þar sem okkur hafa borist áskoranir um að þeir sem ekki eiga heimangengt á aðalfundinn fái tækifæri til að bjóða í boltann höfum við ákveðið að félagsmenn geti sent inn tilboð í gripinn á netfang chelsea@chelsea.is til kl. 20:00 föstudaginn 25. september n.k.
Hæsta tilboðið sem berst á ofangreint netfang fyrir þann tíma verður svo byrjunarupphæðin á sjálfu uppboðinu á aðalfundinum á laugardag!
Meistarakveðja,
Stjórnin.
P.S. Minnum á að tilkynningar um mætingu á fundinn þurfa að berast okkur á netfang chelsea@chelsea.is í síðasta lagi n.k. fimmtudag.