Loksins liggja fyrir tímamörk forkaupsréttar okkar á miðum á leiki með Chelsea í Úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og má nálgast þær upplýsingar á heimasíðu Chelsea klúbbsins á Íslandi, www.chelsea.is, smellið á Chelsea klúbburinn og svo á Hótel- & Miðapantanir 2015 – 2016.
Mjög skammur tími er í forkaupsrétt okkar á miðum á leik Chelsea v Manchester City á Etihad Stadium sem og á leik Chelsea v Crystal Palace á Stamford Bridge í Úrvalsdeildinni eða til kl. 22:00 laugardagskvöldið 11. júlí n.k.Þá liggja einnig fyrir upplýsingar um forkaupsrétt okkar á miðum á leik Arsenal v Chelsea um Samfélagsskjöldinn sem fram fer á Wembley leikvanginum sunnudaginn 2. ágúst n.k. Sama gildir um þennan leik og þá tvo fyrrnefndu, mjög skammur tími er til stefnu eða til kl. 22:00 á laugardagskvöld en eingöngu þeir eru greiddu árgjald til klúbbsins fyrir fimmtudaginn 2. júlí s.l. njóta forkaupsréttar á þennan leik.
Verði eftirspurn meiri en framboð gildir reglan „Fyrstir koma, fyrstir fá“!
Miðaverð á þennan leik er ISK 8.500.
Pantanir berist formanni klúbbsins á netfang chelsea@chelsea.is, athugið að greiða þarf staðfestingar- & tryggingargjald vegna miðakaupa áður en pöntun er send til Chelsea Football Club en nánari upplýsingar varðandi gjaldið og greiðslumáta eru veittar í síma 864 6205.