Breyttir leikdagar

Loksins hafa ensku sjónvarpsstöðvarnar ákveðið um beinar útsendingar frá leikjum í Úrvalsdeildinni í maímánuði og hefur sú ákvörðun áhrif á þrjá leiki Chelsea þann mánuðinn og eru leikirnir sem hér segir:

  • Chelsea v Crystal Palace, verður leikinn sunnudaginn 3. maí og hefst kl. 13:30.
  • Chelsea v Liverpool, verður leikinn sunnudaginn 10. maí og hefst kl. 16:00.
  • West Bromwich Albion v Chelsea, verður leikinn mánudagskvöldið 18. maí og hefst kl. 20:00.

Athugið að allir leiktímar eru samkvæmt staðartíma, þá verða ofantaldir leikir allir sýndir beint á SKY SPORTS.

Upp