5 loyalty punktar í boði – en stuttur tími

Chelsea mun mæta annað hvort Braga frá Portúgal eða Servette frá Sviss í forkeppni Sambandsdeildarinnar og fer fyrri viðureignin fram á Stamford Bridge fimmtudagskvöldið 22. ágúst n.k., klukkan hvað leikurinn mun hefjast er ekki vitað að svo stöddu.

Forkaupsréttur okkar á miðum er mjög skammur eða til kl. 07:00 n.k. miðvikudag, 7. ágúst, grunnverð miða er GBP 27.- fyrir fullorðna og GBP 13,50 fyrir börn, unglinga og ellilífeyrisþega (65 ára og eldri).

ATH. ef eftirspurn verður meiri en framboð munum við fá úthlutað miðum samkvæmt hlutfallsreglu Chelsea (by percentage) sem þýðir að ekki er 100% öruggt að við munum fá alla þá miða sem óskað verður eftir.

Eingöngu er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is

Meistarakveðja,

Stjórnin.

P.S. Þessi leikur gefur af sér 5 Loyalty punkta!

Upp