Á mánudaginn kemur, 10. mars 2014, fagnar Chelsea Football Club 109 ára afmæli félagsins og sex dögum síðar, sunnudaginn 16. mars n.k., verða liðin 17 ár frá stofnun Chelsea klúbbsins á Íslandi.
Í tilefni þessa tímamóta býður Orkan / Skeljungur handhöfum Chelsea Orkulykils / Orkukorts eða staðgreiðslukorts Skeljungs í hópi Chelsea upp á 12.- króna afslátt á líternum af eldsneyti sunnudaginn 16. mars ef greitt er með Orkulykli / Orkukorti eða staðgreiðslukorti Skeljungs í hópi Chelsea! Aukin heldur býður Orkan upp á tvöfalda söfnun dagana 10. – 16. mars, þ.e. Chelsea klúbburinn fær 2.- krónur af verði hvers líters eldsneytis sem keyptur er á þessu tímabili í gegnum afsláttarhópinn sé greitt með Chelsea Orkulykli / Orkukorti eða staðgreiðslukorti Skeljungs.
Þá er bara að fylla á tankana á mánudag og endurtaka leikinn sunnudaginn 16. mars, þess vegna einnig dagana þar á milli!
Og þeir ykkar sem enn hafa ekki sótt um Chelsea Orkulykil / Orkukort þá er um að gera slíkt hið fyrsta, það tekur þrjá – fjóra daga að afgreiða lyklana, þið sækið um, t.d., með því að smella á vörumerki Orkunnar á forsíðu www.chelsea.is, framhaldið er svo “pís of keik“.
Með orkukveðju,
Stjórnin.