Fim 29.júl 2010
Gourley; Drogba fer ekki fet
 

Ron Gourlay, stjórnarformaður Chelsea, segir útilokað að Didier Drogba muni yfirgefa félagið í sumar en umboðsmaður framherjans gaf í skyn að hann gæti verið á leið til Manchester City áður en nýtt tímabil hefst.



Chelsea hafa þó verið fljótir að eyða þeim orðrómi og hefur Gourlay nú ítrekað að þessi 32 ára landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar verði um kyrrt hjá Englandsmeisturunum þetta tímabil. 

„Didier verður áfram leikmaður Chelsea, hann er samningsbundinn," sagði Gourlay við Sky Sports. 

„Svona orðrómar blossa alltaf upp á þessum tíma ársins. Það er eðlilegt að leikmenn okkar séu í fréttunum. En Didier Drogba verður leikmaður Chelsea á næsta ári."

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=94975#ixzz0v1UuyCAY

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA