 |
 |
| Stjarna í fæðingu? |
Lið Frakklands er komið í úrslit Evrópumeistaramóts landsliða, skipað leikmönnum yngri en 19 ára, eftir 2-1 sigur á Króatíu í gær. Spánverjar sigruðu Englendinga þannig það verður Frakkland - Spánn í úrslitum.
Gael Kakuta hefur farið á kostum í þessu móti og hefur skorað tvö mörk ásamt því að leggja upp eitt. Hann skoraði einmitt jöfnunarmark Frakka í gær en það var fyrsta markið sem Delac fær á sig í þessu móti. (Króatískur unglingalandsliðsmaður væntanlegur 2011 á Brúnna.)
Kakuta hefur sýnt þannig takta á þessu móti að maður vill helst fá hann sem fyrst heim og í aðalliðið því hann hefur sýnt að hann er í fantaformi.. Hann spilar úrslitaleikinn við Spán og verður okkar eini fulltrúi í þeim leik. Jacob Mellis spilaði með Englendingum í ósigrinum gegn Spáni.
Kakuta flýgur heim til Cobham á sama tíma og leikmenn Chelsea koma heim frá Þýskalandi.
PBP |