Mið 28.júl 2010
Varaliðið tapaði gegn Rauðu Djöflunum
Kaby átti góðan leik á miðjunni

Sumir leikmanna okkar voru að spila sinn annan leik á sama sólarhringnum. Aðrir voru að koma úr sumarfríi. Allir voru að byrja nýtt leiktímabil með varaliði Chelsea 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



 

Það var heitt og þurrt á Broadfield leikvellinum og liðinu var að venju stjórnað af Steve Holland. Strákarnir spiluðu fantabolta á köflum og áttu leikinn í upphafi hans en töpuðu að lokum fyrir utandeildarliðinu Crawley Town .

Gestgjafarnir hafa eytt miklu í sumar til þess að styrkja hópinn í þeirri von að spila í League 2 á næsta leiktímabili. Stærstu kaup þeirra í sumar er án vafa Sergio Torres, argentínumaðurinn snjalli, sem keyptur var frá Peterborough á 100þ pund.

Annar nýr liðsmaður Crawley, hinn markheppni Matt Tubbs, skoraði annað mark Crawley . Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Josh McEacran, sem hann gat lítið við gert. Þriðja markið skoraði svo varamaðurinn Mikey Malcolm og tryggði Rauðu Djöflunum sanngjarnan sigur þótt svo þrjú – núll gæfi ekki alveg rétta mynd af leiknum.

Crawley stillti upp sterku liði því leiktímabil þeirra hefst von bráðar en Holland hóaði í þá Conor Clifford, Rohan Ince, Nathaniel Chalobah, Josh McEachran og Milan Lalkovic, en þeir höfðu allir tekið þátt í leiknum gegn Ajax á Amsterdam ArenA á föstudeginum.

 

Með þeim í þessari ferð voru Sam Walker, Ben Gordon, Aziz-Deen Conteh, Daniel Philliskirk, Gokhan Tore, and Kaby sem sat sem fastast á bekknum í Hollandi.

 

Það má geta þess að Michael Woods sat á bekknum en hann er nýstiginn uppúr meiðslum.

 

Heimaliðið sýndi frá fyrstu mínútu að engin grið yrðu gefin og fóru hratt og fast í alla bolta. Chelsea liðið var sett á hælana strax í byrjun og sást greinilega að sumir þeirra höfðu ekki jafnað sig eftir leikinn í Hollandi.

Þrátt fyrir yfirburði Crawley fyrstu mínúturnar náðu þeir aldrei að ógna markinu og þegar á leið fór fyrirliðinn, Conor Clifford að láta til sín taka með fínum tæklingum og tilþrifum og stjórnaði spilinu inn á miðjunni.

 

Chelsea átti fyrsta skotið á markið í þessum leik en Gökhan Tore hamraði boltann framhjá Michel Kuipers en því miður fyrir hann og okkur söng boltinn í þverslánni og var síðan bjargað í horn. Nokkur langskot litu dagsins ljós frá Clifford og Philliskirk og um miðbik fyrri hálfleiks leit út fyrir að við værum líklegri til þess að skora. Þá kom fyrsta markið, og ferlegur heppnisstimpill var yfir því.

Mikill munur var á líkamsburðum þessa liða þannig það var alltaf líklegt að mark kæmi úr föstu leikatriði. Crawley fengu hornspyrnu sem miðbvörðurinn hávaxni Hall náði að skalla í átt að marki. Skallinn sveif framhjá Walker í markinu, lenti í þverslánni og skaust þaðan í bak McEachran sem stóð á línunni, og þaðan í markið.

 

1-0 varð fljótt 2-0 þegar Tubbs fékk of mikið pláss í teignum og náði að skalla boltan í netið eftir fyrirgjöf frá hægri. Lítið gerðist fram að leikhléi eftir þetta annað en að Philliskirk fór illa með ákjósanlegt skotfæri sem kom upp úr engu. McEachran, sem var alveg búinn, og Chalobah fengu hvíldina strax í hálfleik. Inn á komu Woods og Ben Sampayo.

 

 

Chelsea átti erfitt með að sækja í síðari hálfleik enda var spilað með Lalkovic einan frammi og Gökhan og Kaby fyrir aftan. Um miðjan hálfleikinn fóru leikar að æsast aftur en Clifford var fyrirferðamikill inn á miðjunni með sín þrumuskot en eitt þeirra fór af Lalkovic og hafnaði í netinu. Það mark var dæmt af vegna hendi en dómarinn taldi boltann hafa snert höndina á Lalkovic. Strákarnir mótmæltu auðvitað, en þetta var auðvitað dálítið “kýldur í magann”.

 

Chelsea hafði nú töglin og haldirnar og oftar en ekki var það Gökhan sem stjórnaði umferðinni á miðjunni en liðið vannýtti kantana á löngum köflum.

 

Fleiri varamenn komu inná; Todd Kane, Amin Affane, og George Saville komu inn fyrir Ince, Gokhan and Clifford.

Ben Gordon átti frábært skot seint í leiknum sem Kuipers átti í töluverðum vandræðum með en strax í næstu sókn setti Mikey Malcolm púnktinn yfir i-ið fyrir Crawley þegar hann sett knöttinn í tómt markið eftir að Walker hafði náð að verja fyrri tilraun hans.

Þessi leikur eins og aðrir leikir á undirbúningstímabilinu snúast um að koma mönnum í leikform. Úrslitin skipta kannski ekki öllu máli. Leikmenn eins og Ince og Chalobah léku vel þótt þeir séu ennþá aðeins 15 ára og voru að spila gegn fullvöxnum karlmönnum úr erfiðri deild.. Clifford stjórnaði miðjunni vel og Gokhan og Lalkovic voru gríðarlega líflegir án þess þó að uppskera neitt í þetta sinnið.

Auðvitað býst maður við betri frammistöðu á fimmtudag gegn Wycombe þó í raun hafi maður ekki orðið fyrir vonbrigðum með strákana í þessum leik. Þeir spiluðu betri bolta, en þegar kom að því að nýta færin sá maður hvar skilur á milli.

Liðið: Walker, Chalobah (Sampayo 45), Ince (Kane 75), Gordon, Deen-Conteh, McEachran (Woods 45), C.Clifford (c) (Saville 87), Philliskirk, Kaby, Gokhan Tore (Affane 84), Lalkovic

Ónotaðir varamenn: Blackman, Nkumu, Stenning, Prosenik, Rodgers, Devyne

Gult: Deen-Conteh ‘71

 

 

 

PBP 

 

 

 

 

 

 

 

 

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA